Þverárfjallsvegur - lausaganga búfjár
Málsnúmer 0808041
Vakta málsnúmerLandbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 138. fundur - 19.08.2008
Þverárfjallsvegur, lausaganga búfjár.
Einar gerði grein fyrir fundi með vegagerðarmönnum á Sauðárkróki. Eftirfarandi var samþykkt og ákveðið að senda til Vegagerðarinnar:
?Á fundi Landbúnaðarnefndar Sveitarfél. Skagafjarðar þ. 19. ágúst ?08 var fjallað um kvartanir og slys sem orðið hafa vegna búfjár á Þverárfjallsvegi, en fjöldi kvartana hefur aukist mjög með aukinni umferð um veginn.
Öllum er ljós sá vandi sem er vegna lausagöngu búfjár á Þverárfjallsvegi, bæði meðan sauðfé og hross eru á afrétti og einnig á tímum utan þess, en hluti landsins með veginum eru heimalönd, sem búfjáreigendur eru að nýta utan afréttartíma.
Landbúnaðarnefnd skorar á Vegagerðina að girt verði sem allra fyrst með veginum alla leið. Hafa verður samráð við alla aðila á vegsvæðinu og lýsir Landbúnaðarnefnd sig fúsa til samstarfs.?
Ofangreind samþykkt send til Magnúsar Vals Jóhannssonar svæðisstjóra, Borgarnesi.
Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 139. fundur - 17.12.2008
Bréf frá Vegagerð v. girðinga um Þverárfjallsveg, sem er svar við bréfi landb.nefndar þ. 26. ágúst sl. Í svari Vegagerðar kemur fram að verið sé að vinna í málinu. Landbúnaðarnefnd fagnar svari Vegagerðar og skorar á Vegagerð að hraða framkvæmdum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 239. fundur - 18.12.2008
Afgreiðsla 139. fundar landbúnaðarnefndar 17.12.08 staðfest á 239. fundi sveitarstj. 18.12.08 með níu atkvæðum.