Byggðarráð samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 50.000.000 kr. til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið vegna hitaveituframkvæmda hjá Skagafjarðarveitum ehf., sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Guðmundi Guðlaugssyni sveitarstjóra, kt. 140259-4899, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar að undirrita lánssamning nr. 65/2008 við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Jafnframt er Guðmundi Guðlaugssyni sveitarstjóra, kt. 140259-4899, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar að undirrita lánssamning nr. 65/2008 við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.