Fara í efni

Verið vísindagarðar - aðalfundur 2009

Málsnúmer 0910004

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 491. fundur - 01.10.2009

Lagt fram aðalfundarboð Versins - vísindagarða ehf. vegna aðalfundar 1. október 2009. Lögð fram tillaga um Snorra Styrkársson sem fulltrúa sveitarfélagsins og Skagafjarðarveitna ehf. í stjórn Versins - vísindagarða ehf. Einnig að Snorri fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum. Tillagan samþykkt. Páll Dagbjartsson ítrekar svohljóðandi bókun frá fyrra ári: "Ég tel að í ljósi hlutafjáreignar eigi sveitarfélagið að eiga einn fulltrúa og Skagafjarðarveitur ehf annan í stjórn Versins". Bjarni Jónsson óskar bókað: "Ég tel að stjórnarsetu eigi að tengja eignarhlut í félaginu."

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 252. fundur - 06.10.2009

Afgreiðsla 491. fundar Byggðaráðs staðfest á 252. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.