Fara í efni

Fjallskil og dýrahald

Málsnúmer 0910047

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 145. fundur - 09.10.2009

Ólafur fór yfir þær reglur sem í gildi eru um fjallskilamál og dýrahald og óskaði eftir að fundarmenn gerður grein fyrir aðstæðum er varðaði smölun í haust.

Fundarmenn töldu ekkert óeðlilegt við smölun og ekki hægt að rekja dauða lambanna til smölunarfyrirkomulags, veður var mjög gott smölunardag og mjög heitt, vagnar eru notaðir fyrir uppgefið fé, gamalær og fl.

Umrædd lömb drápust mjög skyndilega, líklegt er talið að bráðapest hafi verið orsök, líka nefndur selenskortur, um væn lömb var að ræða.

Fundarmenn sammála um að eðlilega hafi verið staðið að smölun og réttarstörfum í haust. Nokkur umræða varð um að dýrbitið fé hafi komið til rétta í haust.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 253. fundur - 20.10.2009

Afgreiðsla 145. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 253. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.