Skagfirðingabraut 29 - Umsókn um rekstrarleyfi.
Málsnúmer 1001006
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 502. fundur - 20.01.2010
Lagt fram erindi frá sýslumanninum á Sauðárkróki þar sem óskað er umsagnar um umsókn Skeljungs hf. um breytingu á rekstrarleyfi á starfstöð sinni að Skagfirðingabraut 29, Sauðárkróki. Er með veitingaleyfi fyrir flokk I og óskar eftir veitingaleyfi fyrir flokk II.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina svo fremi að öllum skilyrðum sé fullnægt.
Skagfirðingabraut 29, Sauðárkróki, 143704. Umsögn vegna rekstrarleyfis. Fyrir liggur beiðni frá embætti Sýslumannsins á Sauðárkróki dagsett 29. desember sl., um umsögn Skipulags- og byggingarnefndar vegna umsóknar Jörgens Magnússonar kt. 010370-5749 fh. SHELL-stöðvarinnar Skeljungs hf. kt 590269-1749 um breytingu á rekstrarleyfi. Óskað er umsagnar vegna rekstrarleyfis í flokki II til að reka veitingastofu og verslun í húsnæði fyrirtækisins á lóðinni nr. 29 við Skagfirðingabraut. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.