Fara í efni

Notendastýrð heimaþjónusta - minnisblað

Málsnúmer 1005184

Vakta málsnúmer

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 159. fundur - 18.05.2010

Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra og tillaga um afmarkað og tímabundið verkefni í heimaþjónustu fyrir fatlaða sem stýrt yrði af viðkomandi notanda sjálfum. Nefndin felur starfsmönnum að undirbúa tillögu að slíku tilraunaverkefni og leggja fyrir nefndina að loknum kosningum með það fyrir augum að það gæti farið í gang með haustinu.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 264. fundur - 08.06.2010

Afgreiðsla 159. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 264. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.