Fara í efni

Hlutafjárhækkun

Málsnúmer 1103125

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 554. fundur - 12.05.2011

Lagt fram bréf frá Flugu hf. þar sem tilkynnt er um að á hluthafafundi félagsins 13. janúar sl. að hækka hlutafé um allt að 30 milljónir króna með útgáfu nýrra hluta. Hluthöfum Flugu hf. stendur til boða að kaupa hlutafé fyrir sömu fjárhæð.

Byggðarráð samþykkir að sveitarfélagið taki þátt í hlutafjáraukningunni fyrir allt að 5 milljónum króna, sem muni greiðast á þremur árum. Fyrsta greiðsla verði greidd haustið 2011. Fjármögnun er vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 279. fundur - 24.05.2011

Afgreiðsla 554. fundar byggðaráðs staðfest á 279. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.