Umsögn um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða
Málsnúmer 1108257
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 565. fundur - 08.09.2011
Lagt fram til kynningar bréf frá iðnaðarráðuneyti þar sem kynnt er tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Samráðs- og kynningarferli. Umhverfisskýrslan ásamt öðrum fylgiskjölum þingsályktunarinnar, má nálgast á heimasíðu rammaáætlunar, www.rammaaetlun.is. Allir sem hagsmuna eiga að gæta og aðrir sem áhuga hafa eru hvattir til að kynna sér þingsályktunartillöguna og umhverfisskýrsluna og senda athugasemdir og ábendingar. Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til miðnættis 11. nóvember 2011.
Afgreiðslu frestað.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 282. fundur - 20.09.2011
Afgreiðsla 565. fundar byggðaráðs staðfest á 282. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.