Fara í efni

Sala á gistingu í Miðgarði - menningarhúsi

Málsnúmer 1210377

Vakta málsnúmer

Menningar- og kynningarnefnd - 65. fundur - 07.11.2012

Lagt fram erindi frá Gullgengi ehf, rekstraraðilum Miðgarðs - menningarhúss, þar sem þau óska eftir því að fá leyfi nefndarinnar fyrir því að selja svefnpokagistingu á efri hæð Miðgarðs.
Menningar- og kynningarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti, svo fremi að önnur tilskilin leyfi séu til staðar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 295. fundur - 21.11.2012

Afgreiðsla 65. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 295. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.