Fara í efni

Rannsóknir á Norðurlandi vestra sumarið 2013

Málsnúmer 1302120

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 618. fundur - 21.02.2013

Lagt fram bréf frá félaginu, Eyðibýli - áhugamannafélagi, þar sem fram kemur ósk um stuðning við verkefnið "Eyðibýli á íslandi" að upphæð kr. 250.000,- til að mæta að hluta kostnaðar rannsakenda í sveitarfélaginu.
Byggðarráð Sveitarfélagins Skagafjarðar lýsir ánægju með verkefnið og er tilbúið til samstarfs við félagið. Mikið starf hefur verið unnið við söfnum upplýsinga í tengslum við Byggðasögu Skagfirðinga sem gætu nýst í þessari vinnu.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 299. fundur - 26.03.2013

Afgreiðsla 618. fundar byggðaráðs staðfest á 299. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.