Lögð fram styrkbeiðni dagsett 17. nóvember 2014 frá stjórn Snorrasjóðs, vegna Snorraverkefnisins sumarið 2015. Verkefnið, sem rekið er af Þjóðræknifélagi Íslendinga og Norræna félaginu á Íslandi, lýtur að því að veita ungu fólki á aldrinum 18-28 ára, af íslenskum ættum í Norður-Ameríku tækifæri til að kynnast rótum sínum á Íslandi í 6 vikna sumarverkefni. Byggðarráð þakkar erindið, en getur ekki orðið við styrkbeiðninni.
Byggðarráð þakkar erindið, en getur ekki orðið við styrkbeiðninni.