Fara í efni

Beiðni um umsögn - drög að reglum um staðfestingu ráðherra á gjaldskrám hitaveitna.

Málsnúmer 1505188

Vakta málsnúmer

Veitunefnd Svf Skagafjarðar - 18. fundur - 08.06.2015

Lögð voru fyrir fundinn drög að reglum um staðfestingu ráðherra á gjaldskrám hitaveitna.
Með reglunum er ætlunin að skýra ferlið varðandi beiðnir um staðfestingu á gjaldskrám og einfalda það með rafrænni stjórnsýslu.
Reglunum er einnig ætlað að reyna að tryggja betur en áður að allar formkröfur séu uppfylltar og að allar veitur gefi upplýsingaru um breytingar á gjaldskrá og ástæður þeirra breytinga á fullnægjandi hátt.
Veitunefnd hefur ekki athugasemdir við drögin.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 328. fundur - 24.06.2015

Afgreiðsla 18. fundar veitunefndar staðfest á 328. fundi sveitarstjórnar 24. júní 2015 með níu atkvæðum.