Fara í efni

Beiðni um breytingu á ákvæði um löndun byggðakvóta

Málsnúmer 1507041

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 21. fundur - 07.07.2015

Atvinnu,- menningar- og kynningarnefnd samþykkir að fela starfsmanni að óska eftir við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að undanþága verði veitt frá löndunarskyldu á byggðakvóta tímabilið 1. júlí - 31. ágúst 2015. Ástæða beiðninnar er fyrirhuguð tímabundin stöðvun á vinnslu bolfisks hjá Fisk Seafood og hefur fyrirtækið því ekki tök á að taka við afla lönduðum vegna byggðakvóta samkvæmt samningum við smábáta á svæðinu.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 702. fundur - 13.07.2015

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að óska eftir við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að undanþága verði veitt frá löndunarskyldu á byggðakvóta tímabilið 1. júlí - 31. ágúst 2015. Ástæða beiðninnar er tímabundin stöðvun á vinnslu bolfisks hjá Fisk Seafood og hefur fyrirtækið því ekki tök á að taka við afla, lönduðum vegna byggðakvóta samkvæmt samningum við smábáta á svæðinu.
Málið áður á dagskrá á 21.fundi atvinnu-menningar- og kynningarnefndar 7.júlí 2015.

Samþykkt var á 329. fundi sveitarstjórnar 6.júlí 2015 að byggðarráð færi með heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar samkvæmt III. kafla skv. 8. gr. samþykktar sveitarfélagsins frá og með 7.júlí 2015.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 330. fundur - 19.08.2015

Afgreiðsla 21. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 330. fundi sveitarstjórnar 19. ágúst 2015 með níu atkvæðum.