Fara í efni

Skólahúsnæði við Freyjugötu á Sauðárkróki

Málsnúmer 1601403

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 729. fundur - 28.01.2016

Byggðarráð samþykkir að skólahúsnæðið við Freyjugötu á Sauðárkróki verði auglýst til sölu, þ.e. gamli barnaskólinn (213-1566). Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma með tillögu að texta auglýsingar á næsta fund ráðsins.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 730. fundur - 04.02.2016

Á fundi Byggðarráðs þann 28.janúar s.l var samþykkt að skólahúsnæðið við Freyjugötu á Sauðárkróki yrði auglýst til sölu, þ.e. gamli barnaskólinn (213-1566). Fyrir fundinum liggja drög að auglýsingu. Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að auglýsa húsið til sölu.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 337. fundur - 17.02.2016

Afgreiðsla 729. fundar byggðaráðs staðfest á 337. fundi sveitarstjórnar 17. febrúar 2016 með níu atkvæðum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 337. fundur - 17.02.2016

Afgreiðsla 730. fundar byggðaráðs staðfest á 337. fundi sveitarstjórnar 17. febrúar 2016 með níu atkvæðum.