Byggðarráð Skagafjarðar - 762
Málsnúmer 1610023F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 348. fundur - 23.11.2016
Fundargerð 762. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 348. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 762 Byggðarráð samþykkir að stofnframlag og viðbótarframlag frá Sveitarfélaginu Skagafirði til byggingar átta leiguíbúða á vegum Skagfirskra leiguíbúða hses. verði annars vegar á formi niðurfellingar á lóða- og gatnagerðargjöldum og hins vegar með beinu viðbótarfjárframlagi til að mæta kröfu um 16% hlutfall stofnframlags (12% stofnframlag og 4% viðbótarframlag) sveitarfélagsins af stofnvirði íbúðanna. Bókun fundar Afgreiðsla 762. fundar byggðarráðs staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 762 Lagt fram bréf dagsett 10. október 2016 frá Húsfélaginu Víðigrund 5 þar sem sótt er um niðurfellingu á gatnagerðargjöldum vegna viðbyggingar við félagsheimili Oddfellowreglunnar, Víðigrund 5. Vísað er til 6. gr. samþykkta sveitarfélagsins um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld, nr. 1300/2013.
Byggðarráð samþykkir að fella niður 30% af útgefnum reikningi vegna gatnagerðar- og byggingarleyfisgjalda. Bókun fundar Afgreiðsla 762. fundar byggðarráðs staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 762 Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands kom á fundinn og kynnti starfsemi stofunnar. Einnig sátu fundinn undir þessum dagskrárlið nefndarmenn atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, Gunnsteinn Björnsson, Viggó Jónsson og Hanna Þrúður Þórðardóttir, svo og Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri. Bókun fundar Afgreiðsla 762. fundar byggðarráðs staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 762 Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands kom á fundinn og kynnti skýrslu Flugklasans Air 66N. Einnig sátu fundinn undir þessum dagskrárlið nefndarmenn atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, Gunnsteinn Björnsson, Viggó Jónsson og Hanna Þrúður Þórðardóttir, svo og Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri. Bókun fundar Afgreiðsla 762. fundar byggðarráðs staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 762 Lagður fram kaupsamningur og afsal um fasteignina Víðigrund 22, Sauðárkróki, fastanúmer 213-2399. Seljandi er Óli Þór Ásmundsson og kaupandi Sveitarfélagið Skagafjörður. Fjárheimild fyrir kaupunum er í fjárhags- og fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins árið 2016.
Byggðarráð samþykkir að kaupa fasteignina Víðigrund 22, fastanúmer 213-2399. Bókun fundar Afgreiðsla 762. fundar byggðarráðs staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 762 Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að auglýsa fasteignina Borgarflöt 1, fastanúmer 213-1287, til sölu. Gert er ráð fyrir sölu fasteignarinnar í fjárhagsáætlun ársins 2016. Bókun fundar Afgreiðsla 762. fundar byggðarráðs staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 762 Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem haldinn var 23. september 2016. Bókun fundar Afgreiðsla 762. fundar byggðarráðs staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.