Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd - 123

Málsnúmer 1611011F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 349. fundur - 14.12.2016

Fundargerð 123. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 349. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sigríður Magnúsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lögð voru fyrir fundinn drög að fjárhagsáætlun Skagafjarðarhafna fyrir árið 2017.
    Nefndin samþykkir áætlunina og vísar til Byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 123. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lögð var fyrir fundinn tillaga um gjaldskrárbreytingar Skagafjarðarhafna fyrir árið 2017. Tillagan gerir ráð fyrir 10,1% hækkun á útseldri vinnu samkvæmt breytingu á launavísitölu sl. 12 mánuði.
    Almennir liðir, utan útseldrar vinnu, hækka um 1,8% samkvæmt hækkun vísitölu neysluverðs síðastliðna 12 mánuði. Með almennum liðum er átt við skipagjöld, vörugjöld, leigu á gámasvæði, sorphirðu, hafnsögugjöld, hafnsögubát, vatnssölu og vigtargjöld.
    Nefndin samþykkir tillöguna og vísar til Byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 123. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Fundargerðir stjórnar Hafnarsambands Íslands frá 29. apríl, 17. maí,16. ágúst, 19. september, 12. október og 11. nóvember 2016 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lögð voru fram til kynningar drög að sóttvarnaráætlun fyrir hafnir og skip. Áætlunin er liður í viðbragsáætlun almannavarna og er unnin af sóttvarnarlækni, ríkislögreglustjóra, Hafnasambandi Íslands, Landhelgisgæslunni, Tollstjóranum, Samgöngustofu, Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti Sveitarfélaga. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lögð var fram til kynningar skýrsla innanríkisráðherra um stöðu hafna. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lögð voru fyrir fundinn drög að skipulagslýsingu hafnarsvæðis á Sauðárkróki.
    Nefndin samþykkir skipulagslýsinguna fyrir sitt leyti.
    Bókun fundar Afgreiðsla 123. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðulands vestra frá 7. og 16. júní, 15. september og 10. nóvember 2016 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lagt var fram til kynningar minnisblað frá Veitu- og framkvæmdasviði þar sem farið er yfir mögulegar breytingar á sorpflokkun og sorphirðu í dreifbýli í Skagafirði.
    Unnið verður áfram að útfærslu breytinganna. Stefnt að innleiðingu sorpflokkunar í dreifbýli árið 2017.
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lögð voru fyrir fundinn drög að fjárhagsáætlun fyrir Brunavarnir Skagafjarðar fyrir árið 2017.
    Nefndin samþykkir áætlunina og vísar til Byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 123. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 123 Lögð var fyrir fundinn tillaga um gjaldskrárbreytingar Brunavarna Skagafjarðar fyrir árið 2017. Tillagan gerir ráð fyrir 5,5% hækkun á útseldri vinnu og leigu tækja. Gjaldskrá vegna slökkvitækjaþjónustu önnur en þeir liðir sem innihalda vinnu munu ekki hækka.
    Nefndin samþykkir tillöguna og vísar til Byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 123. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.