Fara í efni

Gjaldskrá 2017 Dagdvöl aldraðra

Málsnúmer 1611106

Vakta málsnúmer

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 237. fundur - 15.11.2016

Lagt er til að samanlagt daggjald notanda á árinu 2017 verði 1.646 kr. í stað 1.530 kr. nú. Tillagan samþykkt og henni vísað til byggarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 764. fundur - 17.11.2016

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu um gjaldskrá fyrir dagdvöl aldraðra á árinu 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 348. fundur - 23.11.2016

Vísað frá 764. fundi byggðarráðs frá 17. nóvember 2016 tillögu um gjaldskrá fyrir dagdvöl aldraðra á árinu 2017.

Lagt er til að samanlagt daggjald notanda á árinu 2017 verði 1.646 kr. í stað 1.530 kr. nú.



Tillagan borin upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 767. fundur - 08.12.2016

Lögð fram tillaga um breytingu á gjaldskrá Dagdvalar aldraðra 2017 sem samþykkt var á 764. fundi byggðarráðs þann 17. nóvember 2016. Lagt er til að eftirfarandi setningu verði bætt inn í gjaldskrána: „Notandi sem ekki nýtir rými sitt i Dagdvöl greiðir daggjald að frádregnu fæðisgjaldi enda óski hann eftir að halda plássinu.“

Byggðarráð samþykkir breytinguna.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 349. fundur - 14.12.2016

Vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar, frá 767. fundi byggðarráðs þann 8. desember 2016, þannig bókað:



"Lögð fram tillaga um breytingu á gjaldskrá Dagdvalar aldraðra 2017 sem samþykkt var á 764. fundi byggðarráðs þann 17. nóvember 2016.

Lagt er til að eftirfarandi setningu verði bætt inn í gjaldskrána: "Notandi sem ekki nýtir rými sitt i Dagdvöl greiðir daggjald að frádregnu fæðisgjaldi enda óski hann eftir að halda plássinu."



Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.