Byggðarráð Skagafjarðar - 767
Málsnúmer 1612003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 349. fundur - 14.12.2016
Fundargerð 767. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 349. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Lögð fram fundargerð frá 6. desember 2016 vegna opnunar tilboða í fasteignina Borgarflöt 1, 213-1287, Sauðárkróki. Tilboðin voru opnuð á skrifstofu sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að viðstöddum Ástu Pámadóttur sveitarstjóra og Margeiri Friðrikssyni sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Eftirtaldir sendu tilboð (í stafrófsröð):
1.
IG Ferðir ehf.
2.
Kaupfélag Skagfirðinga
3.
Kiwanisklúbburinn Drangey
4.
Sigurpáll Þ. Aðalsteinsson og Kristinn T. Björgvinsson f.h. óstofnaðs félags
5.
Þreksport ehf.
Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði hæstbjóðanda, IG Ferða ehf. Bókun fundar Afgreiðsla 767. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Lögð fram tillaga um breytingu á 3. gr. reglna um Dagdvöl aldraðra hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Greinin var orðuð svo: „Notendur Dagdvalar greiða daggjald fyrir veru sína hverju sinni samkvæmt reglugerð velferðarráðuneytisins um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum og ákvörðunum sveitarstjórar Sveitarfélagsins Skagafjarðar.“
Gerð er tillaga um að greinin verði svohljóðandi:
„Notendur Dagdvalar greiða daggjald fyrir veru sína hverju sinni samkvæmt reglugerð velferðarráðuneytisins um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum og árlegum ákvörðunum sveitarstjórar Sveitarfélagsins Skagafjarðar um gjaldskrá. Notandi sem ekki nýtir rými sitt í Dagdvöl greiðir daggjald að frádregnu fæðisgjaldi enda óski hann eftir að halda plássinu.“
Byggðarráð samþykkir tillöguna. Bókun fundar Forseti gerir tilllögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 19 á dagskrá fundarins, Dagdvöl aldraðra sept 2016. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Lögð fram tillaga um breytingu á gjaldskrá Dagdvalar aldraðra 2017 sem samþykkt var á 764. fundi byggðarráðs þann 17. nóvember 2016. Lagt er til að eftirfarandi setningu verði bætt inn í gjaldskrána: „Notandi sem ekki nýtir rými sitt i Dagdvöl greiðir daggjald að frádregnu fæðisgjaldi enda óski hann eftir að halda plássinu.“
Byggðarráð samþykkir breytinguna. Bókun fundar Forseti gerir tilllögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 20 á dagskrá fundarins, Gjaldskrá 2017 Dagdvöl aldraðra. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Lögð fram tillaga að breytingu á reglum um húsnæðismál í Sveitarfélaginu Skagafirði frá og með 1. janúar 2017. Gerð er tillaga um að breyta 4. grein reglnanna þannig að leiguverð fyrir íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins verður 1.200 kr./m2 miðað við 1. janúar 2017 og önnur gildi hækki um 15% frá því sem nú er.
Vegna nýrra laga um húsnæðisbætur nr. 75/2016, breytinga á lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 og nýrra laga nr. 52/2016 lög um almennar íbúðir, þarf að endurskoða í heild sinni reglur um húsnæðismál í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir tillögu um breytingu á 4. grein reglna um húsnæðismál í Sveitarfélaginu Skagafirði og felur jafnframt sveitarstjóra að vinna drög að breytingu á reglunum í heild sinni með tilliti til breytinga á lögum og reglugerðum.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu byggðarráðs, er varðar þann hluta, reglna um húsnæðismál í Sveitarfélagsinu Skagafirði, sem viðkoma leiguverði, til liðar nr. 21 á dagskrá fundarins. Reglur um húsnæðismál - breyting 2017. Samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla 767. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Unnið að fjárhagsáætlun. Á fundinn kom undir þessum dagskrárlið Indriði Þ. Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs. Bókun fundar Afgreiðsla 767. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Lögð fram til kynningar fundargerð 30. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 24. nóvember 2016. Bókun fundar Fundargerð 30. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 24. nóvmeber 2016 lögð fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Lagt fram til kynningar bréf frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsett 2. desember 2016, varðandi sölu á jörðinni Barð, landnúmer 146777. Seljandi er Símon Ingi Gestsson. Kaupandi er Fyrirbarð ehf. Ríkissjóður Íslands hefur fallið frá lögbundnum forkaupsrétti að eigninni, sbr. 41. gr. jarðalaga nr. 81/2004, með yfirlýsingu þess efnis, dags. 31. október 2016. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349.fundi sveitarstjórnar 14. desmber 2016
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 767 Lagður fram til kynningar ársreikningur Flugu ehf. fyrir árið 2015. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016