Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 768

Málsnúmer 1612010F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 349. fundur - 14.12.2016

Fundargerð 768. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 349. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 768 Á 767. fundi byggðarráðs var samþykkt að ganga að hæsta tilboði í fasteignina Borgarflöt 1, frá IG Ferðum ehf. IG Ferðir ehf. hafa nú fallið frá tilboði sínu með tölvupósti þann 9. desember 2016.
    Byggðarráð samþykkir að gera næstbjóðanda, Þreksporti ehf., gagntilboð.
    Bókun fundar Afgreiðsla 768. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 768 Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfa í Sveitarfélaginu Skagafirði. Gjaldskránni var vísað frá 295. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 9. desember 2016.
    Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 22 á dagskrá fundarins, Gjaldskrá skipulagsfulltrúa v. 2017. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 768 Lögð fram drög að endurnýjun á vátryggingasamningi við Vátryggingafélag Íslands til fjögurra ára frá 1. janúar 2017 að telja. Lögð verður áhersla á náið samstarf í forvarna- og öryggismálum á samningstímanum.
    Byggðarráð samþykkir framlögð samningsdrög.
    Bókun fundar Afgreiðsla 768. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 768 Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árin 2017-2021.
    Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að vísa fjárhagsáætluninni til síðari umræðu í sveitarstjórn. Fulltrúi Vg og óháðra, Bjarni Jónsson situr hjá við afgreiðsluna.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 24 á dagskrá fundarins, Fjárhagsáætlun 2017-2020. Samþykkt samhljóða