Fara í efni

Húsnæðisáætlanir, stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki.

Málsnúmer 1612093

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 769. fundur - 15.12.2016

Lagt fram bréf dagsett 7. desember 2016 frá Landssamtökunum Þroskahjálp varðandi húsnæðisáætlanir, stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki. Hvetja Landssamtökin Þroskahjálp stjórnendur sveitarfélaga eindregið til að huga sérstaklega að aðstæðum og þörfum fólks með þroskahömlun og fatlaðs fólks almennt þegar þeir gera áætlanir í húsnæðismálum og setja reglur og/eða taka ákvarðanir um veitingu stofnframlaga samkvæmt nýjum lögum sem um það gilda.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið.