Byggðarráð Svf. Skagafjarðar
Dagskrá
1.Húsnæðisáætlanir, stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki.
Málsnúmer 1612093Vakta málsnúmer
2.Bókun um fjárframlög til hafnaframkvæmda
Málsnúmer 1612097Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. desember 2016 frá Hafnasambandi Íslands varðandi mikla skerðingu á fjárframlögum til hafnaframkvæmda árið 2017 í frumvarpi til fjárlaga 2017.
Byggðarráð hefur miklar áhyggjur af skerðingu fjármagns til hafnaframvæmda 2017 og tekur undir bókun Hafnasambands Íslands sem er svohljóðandi: "Í frumvarpi til fjárlaga 2017 er gert ráð fyrir 212 mkr.í hafnabótasjóð, sem er 400 mkr. lækkun frá árinu 2016. Í nýsamþykktri samgönguáætlun er hins vegar gert ráð fyrir 1.158 mkr. í hafnabótasjóð.
Á nýliðnu hafnasambandsþingi sem haldið var 13.-14. október s.l. var því fagnað að hlutur hafna var aukinn í samgönguáætlun. Sá fögnuður reyndist skammvinnur er því sá fögnuður dreginn til baka enda telur stjórn hafnasambandsis að fyrirhuguð framlög á árinu 2017 séu óviðunandi með öllu."

3.Borgarflöt 1 - sala
Málsnúmer 1610321Vakta málsnúmer
Málið áður á dagskrá 768. fundar byggðarráðs. Samþykkt var þá að gera Þreksporti ehf. gagntilboð sem fyrirtækið hefur gengið að. Söluverð fasteignarinnar er 48 milljónir króna.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga frá samningum um söluna.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga frá samningum um söluna.
4.Umsagnarbeiðni - Frumvarp til laga um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (A deild)
Málsnúmer 1612125Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. desember 2016 frá nefndasviði Alþingis þar sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (breyting á A-deild sjóðsins). 6. mál.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar leggur áherslu á að sem mest sátt náist um frumvarpið og það verði samþykkt á Alþingi fyrir næstu áramót.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar leggur áherslu á að sem mest sátt náist um frumvarpið og það verði samþykkt á Alþingi fyrir næstu áramót.
5.Fundagerðir 2016 - SSNV
Málsnúmer 1601003Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar SSNV frá 6. desember 2016.
Fundi slitið - kl. 09:37.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið.