Smáragrund 2A - Umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 1612161
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 39. fundur - 22.12.2016
Tekin fyrir byggingarleyfisumsókn Atla Gunnars Arnórssonar hjá Stoð ehf. Verkfræðistofu, f.h. Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Umsókn um leyfi til að byggja yfir útskot sem áður var aðalinngangur Áfengis- og tóbaksverslunarinnar að Smáragrund 2 á Sauðárkróki. Einnig sótt um að útbúa sorpgeymslu í útskoti við vöruhurð og klæða húsið utan með álklæðningu. Framlögð gögn eru dagsett 6. desember 2016. Byggingaráformin samþykkt.