Fara í efni

Veitunefnd - 35

Málsnúmer 1703008F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 353. fundur - 12.04.2017

Fundargerð 35. fundar veitunefndar lögð fram til afgreiðslu á 353. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð, enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Veitunefnd - 35 Sviðstjóri kynnti nefndarmönnum hagkvæmnisathugun á þeim svæðum sem liggja utan 5 ára áætlunar Skagafjarðarveitna.
    Samkvæmt núgildandi framkvæmdaáætlun verður lögð hitaveita í Deildardal, Óslandshlíð, Viðvíkursveit og Hjaltadal árin 2018 og 2019 og eru það síðustu framkvæmdir á áætluninni sem samþykkt var árið 2014.
    Mikill áhugi er á hitaveituframkvæmdum hjá íbúum og fasteignaeigendum utan þeirra svæða sem framkvæmdaáætlunin nær til og hefur því á síðustu misserum verið unnið að athugun á þeim svæðum sem raunhæft er að leggja hitaveitu.
    Svæðin sem um ræðir eru Efribyggð, norðanvert Hegranes, Reykjaströnd að hluta auk stakra tenginga innan núverandi svæða.
    Niðurstöður þessarar athugunar liggja fyrir og verða íbúar og landeigendur hvers svæðis fyrir sig boðaðir á fund veitunefndar þar sem þeim verða kynntar niðurstöður.
    Bókun fundar Afgreiðsla 35. fundar veitunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 35 Nefndarmönnum var sýnd stutt kynning vegna íbúafundar um ljósleiðaravæðingu í dreifbýli í menningarhúsinu Miðgarði fimmtudaginn 16. mars. Bókun fundar Afgreiðsla 35. fundar veitunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 35 Útboðsgögn vegna vinnuhluta hitaveituframkvæmda í Lýtingsstaðahreppi voru kynnt. Lagning ljósleiðara er innifalinn í vinnuútboði. Bókun fundar Afgreiðsla 35. fundar veitunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.