Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 784

Málsnúmer 1705014F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 356. fundur - 07.06.2017

Fundargerð 784. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 356. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson, kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lagður fram tölvupóstur úr máli númer 1705135, dagsettur 12. maí 2017, frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn frá Prófasturinn-Gistiheimili ehf., kt. 430517-1390, um að reka gististað í flokki II að Aðalgötu 14 (213-1129), Sauðárkróki. Fram kemur einnig að fyrir hafa Krókaleiðir ehf., kt. 680403-2360, gistileyfi að Aðalgötu 14 (Gisting Litla Borg), sem mun falla úr gildi þegar framangreind umsókn fær fullnaðarafgreiðslu hjá embættinu.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Sigríður Svavarsdóttir óskar bókað að hún taki ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lögð fram drög að leiðbeiningum um notkun samfélagsmiðla á vegum Sveitarfélagsins Skagafjarðar s.s. heimasíður og Facebooksíður stofnana.
    Byggðarráð samþykkir framangreindar leiðbeiningar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 8 Leiðbeiningar um notkun samfélagsmiðla. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lagt fram bréf frá Ungmennasambandi Skagafjarðar, dagsett 2. maí 2017. Stjórn UMSS óskar eftir stuðningi sveitarfélagsins við umsókn sambandsins um að halda Unglingalandsmót UMFÍ í Skagafirði árið 2020 á 110. afmælisári ungmennasambandsins.
    Byggðarráð samþykkir að styðja við umsókn Ungmennasambands Skagafjarðar um að halda Unglingalandsmót UMFÍ í Skagafirði árið 2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lögð fram drög að samningi um rekstur upplýsingamiðstöðvar á Sauðárkróki á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Puffin and friends, kt. 601106-0780, tímabilið 1. júní ? 30. september 2017.
    Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
    Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. maí 2017 frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra varðandi skipun samgöngu- og innviðanefnd SSNV skv. ákvörðun 25. ársþings sambandsins. Hvert aðildarsveitarfélag á einn fulltrúa í nefndinni og annan til vara. Óskað er eftir tilnefningu frá Sveitarfélaginu Skagafirði.
    Byggðarráð samþykkir að tilnefna Sigfús Inga Sigfússon sem aðalmann og Bryndísi Lilju Hallsdóttur sem varamann.
    Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lagt fram tilboð dagsett 24. apríl 2017 frá Íslenska Gámafélaginu, kt. 470596-2289 í uppbyggingu og rekstur á rafhleðslustöðvum í sveitarfélaginu.
    Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til veitu- og framkvæmdasviðs til umsagnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. maí 2017 frá Orku Náttúrunnar, þar sem ON óskar eftir að ganga til samstarfs við Sveitarfélagið Skagafjörð um uppsetningu á hlöðum í Varmahlíð og á Sauðárkróki.
    Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til veitu- og framkvæmdasviðs til umsagnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lagðar fram til kynningar bókanir sveitarstjórna Húnaþings vestra, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um samstarf um rekstur á Náttúrustofu Norðurlands vestra. Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Byggðarráð samþykkir að tilnefna eftirtalin í stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra.
    Aðalmenn: Stefán Vagn Stefánsson, Sigríður Svavarsdóttir, Halldór G. Ólafsson.
    Varammenn: Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Gunnsteinn Björnsson, Unnur Valborg Hilmarsdóttir.

    Bjarni Jónsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með átta atkvæðum. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu málsins.
  • .10 1704141
    Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 784 Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar SSNV þann 9. maí 2017. Bókun fundar Afgreiðsla 784. fundar byggðarráðs staðfest á 356. fundi sveitarstjórnar 7. júní 2017 með níu atkvæðum.