Fara í efni

Umsagnarbeiðni - drög að reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns

Málsnúmer 1705061

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 47. fundur - 14.06.2017

Drög að reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns dagsett 8. maí sl. voru kynnt fyrir héraðsskjalavörðum og fulltrúum sveitarfélaga á fundi hjá Þjóðskjalasafni Íslands þann 15. maí 2017. Hjá Sveitarfélaginu Skagafirði var sviðsstjóra Stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt héraðsskjalaverði falið að koma með tillögu að athugasemdum fyrir hönd Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd. Tillagan var kynnt og samþykkt í nefndinni.