Lagt fram bréf frá Bílaklúbbi Skagafjarðar, dagsett 29. maí 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að halda rallýkeppni helgina 28.-29. júlí 2017. Eknar verða sérleiðirnar: 744 Þverárfjallsvegur, (gamli vegurinn að mestu), 742 Mýrarvegur frá Mánaskál að fjárrétt við Kirkjuskarð, F752 Skagafjarðarvegur frá Litluhlíð að Þorljótsstöðum, F756 Mælifellsvegur um Mælifellsdal, Sauðárkrókshöfn og Nafir. Keppnin fer fram í samræmi við keppnisreglur AKÍS um aksturskeppnir. Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.