Lagt fram bréf frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dagsett 30. maí 2017, varðandi styrkumsókn Skíðadeildar Umf. Tindastóls til samtakanna að upphæð 40 milljónir króna. Var erindið tekið fyrir í stjórn SSNV þann 9. maí 2017. Óskað er eftir afstöðu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar um hvort hún sé meðmælt eða andvíg því að SSNV veiti Skíðadeild Umf. Tindastóls styrk að fjárhæð 30 milljónir króna. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar er meðmælt því að SSNV veiti Skíðadeild Umf. Tindastóls styrk að fjárhæð 30 milljónir króna.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar er meðmælt því að SSNV veiti Skíðadeild Umf. Tindastóls styrk að fjárhæð 30 milljónir króna.