Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 785

Málsnúmer 1706005F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 357. fundur - 28.06.2017

Fundargerð 785. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 357. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagður fram tölvupóstur úr máli 1705287, dagsettur 23. maí 2017 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Drangeyjarferða ehf., kt. 480916-1070, um tímabundið áfengisleyfi og tækifærisleyfi vegna útitónleika að Reykjum á Reykjaströnd, 551 Sauðárkróki.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagður fram tölvupóstur úr máli 1705292, dagsettur 23. maí 2017 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Austari ehf., kt. 660310-0450, um leyfi til að reka veitingastað í flokki II, veitingastofa - greiðasala, að Hafgrímsstöðum, 560 Varmahlíð.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagður fram tölvupóstur úr máli 1705387, dagsettur 30. maí 2017 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Félagsheimilisins Melsgils., kt. 460269-5719, um leyfi til að vera með svefnpokagistingu í flokki II í Félagsheimilinu Melsgili, 551 Sauðárkróki.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • .4 1705154 Trúnaðarmál
    Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagt fram fundarboð um aðalfund Eyvindarstaðarheiðar ehf., þann 14. júní 2017, kl. 13:00 að Borgarmýri 1, Sauðárkróki.
    Byggðarráð samþykkir að Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri verði fulltrúi sveitarfélagsins og fari með atkvæðisrétt þess.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lögð fram tillaga að breyttum reglum um Hvatapeninga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna í Sveitarfélaginu Skagafirði. Verið er að laga reglurnar að upptöku nýs skráningakerfis í gegnum Nóra, sem tekið var upp um síðustu áramót. Skilyrði þess að hægt sé að nýta Hvatapeningana er að um skipulagt íþrótta-, lista- eða æskulýðsstarf sé að ræða og sé stundað undir leiðsögn þjálfara, leiðbeinenda eða kennara. Þetta á við um allt skipulagt íþrótta- og æskulýðstarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, tónlistarskóla, skáta og önnur námskeið skipulögð af frístundasviði Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sbr. Sumar-TÍM.
    Hvatapeningana er hægt að nýta til að greiða niður æfinga-/þáttökugjöld í skipulögðu íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfi. Réttur til Hvatapeninga fyrir árið 2017 fellur niður í árslok. Ónýttir Hvatapeningar nýtast ekki milli ára.
    Breytingin samþykkt á 242. fundi félags- og tómstundanefndar þann 30. mars 2017.
    Byggðarráð staðfestir samþykkt félags- og tómstundanefndar á breytingu á reglum um Hvatapeninga.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 12 "Reglur v. Hvatapeninga 2017" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagt fram bréf frá Bílaklúbbi Skagafjarðar, dagsett 29. maí 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að halda rallýkeppni helgina 28.-29. júlí 2017. Eknar verða sérleiðirnar: 744 Þverárfjallsvegur, (gamli vegurinn að mestu), 742 Mýrarvegur frá Mánaskál að fjárrétt við Kirkjuskarð, F752 Skagafjarðarvegur frá Litluhlíð að Þorljótsstöðum, F756 Mælifellsvegur um Mælifellsdal, Sauðárkrókshöfn og Nafir. Keppnin fer fram í samræmi við keppnisreglur AKÍS um aksturskeppnir.
    Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagt fram bréf frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dagsett 30. maí 2017, varðandi styrkumsókn Skíðadeildar Umf. Tindastóls til samtakanna að upphæð 40 milljónir króna. Var erindið tekið fyrir í stjórn SSNV þann 9. maí 2017. Óskað er eftir afstöðu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar um hvort hún sé meðmælt eða andvíg því að SSNV veiti Skíðadeild Umf. Tindastóls styrk að fjárhæð 30 milljónir króna.
    Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar er meðmælt því að SSNV veiti Skíðadeild Umf. Tindastóls styrk að fjárhæð 30 milljónir króna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagt fram bréf dagsett 24. maí 2017 frá Stapa lífeyrissjóði, þar sem boðað er til aukaársfundar sjóðsins árið 2017 þann 22. júní 2017 í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri.
    Byggðarráð samþykkir að sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs sæki fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagt fram bréf dagsett 24. maí 2017 frá Íbúðalánasjóði varðandi húsnæðisáætlanir sveitarfélaga.
    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að hefja vinnu við gerð húsnæðisáætlunar fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Undir þessum dagskrárlið sátu Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og Ingvar Páll Ingvarsson verkefnastjóri á veitu- og framkvæmdasviði. Rætt var um framkvæmd á byggingu gervigrasvallar á Sauðárkróki og útboð á verkinu.
    Byggðarráð samþykkir að verkið verði boðið út hið fyrsta.
    Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • .12 1706031 Trúnaðarmál
    Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Málið áður á dagskrá 782. fundi byggðarráðs þann 4. maí 2017. Óskað var eftir fundi með Braga Guðbrandssyni forstjóra Barnaverndarstofu og er hann fyrirhugaður í dag, 8. júní 2017. kl. 16:00 í húsnæði Barnaverndarstofu í Reykjavík. Fulltrúar byggðarráðs ásamt fulltrúa starfsmanna Háholts munu fara til fundar. Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 29. maí 2017 frá Varasjóði húsnæðismála þar sem kynntar eru niðurstöður könnunar sjóðsins á stöðu leiguíbúðamála hjá sveitarfélögum. Niðurstöður úr könnun vegna ársins 2016 liggja fyrir og eru birtar á heimasvæði Varasjóðsins á vefsíðu velferðarráðuneytisins. Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagður fram til kynningar ársreikningur 2016 vegna Menningarseturs Skagfirðinga. Bókun fundar Ársreikningur Menningarseturs Skagfirðinga 2016 lagður fram til kynningar á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. maí 2017 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi breytingar á reglugerðum vegna lífeyrisskuldbindingauppgjörs. Bókun fundar Afgreiðsla 785. fundar byggðarráðs staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 785 Lagður fram til kynningar ársreikningur 2016 vegna Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Bókun fundar Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra 2016 lagður fram til kynningar á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017