Fara í efni

Ráðning endurskoðanda

Málsnúmer 1706047

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 357. fundur - 28.06.2017

Samkvæmt 72. gr. sveitarstjórnarlaga um endurskoðun segir m.a. að endurskoðandi sem ber ábyrgð á endurskoðun sveitarfélags skal taka sér hlé frá endurskoðun þess í a.m.k. tvö ár samfellt eigi síðar en sjö árum eftir að hann var ráðinn til verksins. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að KPMG - Þorsteinn Þorsteinsson verði endurskoðandi sveitarfélagsins næstu tvö ár í stað KPMG - Kristjáns Jónassonar.
Borið upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.