Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 793

Málsnúmer 1709007F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 359. fundur - 11.10.2017

Fundargerð 793. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 359. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Viggó Jónsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • .1 1709037 Fuglasafn
    Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Lagður fram tölvupóstur frá Kjartani Jónssyni ásamt myndum þar sem sveitarfélaginu er boðið til kaups fuglasafn. Þetta sérstaka og fágæta safn telur nú 150 fugla ásamt hvítum ref og hvítum mink. Byggðarráð þakkar fyrir boðið en sér ekki fært að kaupa safnið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 793. fundar byggðarráðs staðfest á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Lagt fram aðalfundarboð frá Verinu Vísindagarðar ehf. Aðalfundur verður haldinn þann 25. október n.k. kl. 16.00.
    Byggðarráð samþykkir að Gunnsteinn Björnsson fari með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 793. fundar byggðarráðs staðfest á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Lagt fram bréf frá Einari Þorvaldssyni þar sem hann óskar eftir því að farið verði í meiri þakviðgerðir á Félagsheimilinu Höfðaborg en til stendur á þessu ári. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunar ársins 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 793. fundar byggðarráðs staðfest á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017 með níu atkvæðum.
  • .4 1709133 Öldungaráð
    Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Lögð fram drög að samþykktum fyrir öldungaráð hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til umsagnar hjá Félags- og tómstundanefnd. Bókun fundar Afgreiðsla 793. fundar byggðarráðs staðfest á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017 með níu atkvæðum.
  • .5 1709134 Nefndalaun 2017
    Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Á byggðarráðsfundi 10.nóvember 2016 vísaði Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar því til sveitarstjórnar að hafna hækkun á launakjörum fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum sveitarfélagsins, sem gerði ráð fyrir 44% hækkun þingfararkaups sem kjararáð úrskurðaði um þann 29. október s.l. Sveitarstjórn samþykkti að hafna hækkun kjararáðs og fól byggðarráði að koma með aðra tillögu. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar leggur til við sveitarstjórn að nefndarlaun sem bundin eru þingfarakaupi samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins hækki um 15% í stað 44%. Bókun fundar Afgreiðsla 793. fundar byggðarráðs staðfest á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Sveitarstjóri fór yfir verklag vegna fjárhagsáætlunar 2018-2021. Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi verklag. Bókun fundar Afgreiðsla 793. fundar byggðarráðs staðfest á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017 með níu atkvæðum.
  • .7 1709132 Trúnaðarmál
    Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Trúnaðarmál fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 793. fundar byggðarráðs staðfest á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Lagt fram til kynningar reglugerðarbreytingar varðandi fjármál sveitarfélaga. Reglugerðir númer 792/2017 og 793/2017. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 793 Lagt fram til kynningar fundargerð stjórnar SSNV frá 12.september 2017. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 359. fundi sveitarstjórnar 11. október 2017.