Rarik - Umsókn um strengleið - Helluland í Hegranesi
Málsnúmer 1709024
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd - 309. fundur - 13.09.2017
Rögnvaldur Guðmundsson sækir fh. RARIK um strenglögn í landi Hellulands og í landi nokkurra lóða sem skipt hefur verið út úr Hellulandi samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Fyrir liggja umsagnir Vegagerðar, Minjavarðar og landeigenda. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt. Taka þarf tillit til umsagna Vegagerðar og Minjavarðar varðandi framkvæmdina.