Fræðslunefnd - 124
Málsnúmer 1711004F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 361. fundur - 29.11.2017
Fundargerð 124. fundar fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu á 361. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Þórdís Friðbjörnsdóttir kynnti fundargerð. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Bjarni Jónsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir kvöddu sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 124 Síðast liðin ár hefur fræðslunefnd lagt til við sveitarstjórn aukinn opnunartíma yfir sumarið í Ársölum á Sauðárkróki, annars vegar að einungis sé lokað í tvær vikur á sumri og hins vegar að hann sé opinn allan sumarleyfistímann. Þetta hefur verið gert í þeirri viðleitni að koma betur til móts við óskir foreldra. Í ljósi þess fjölda barna sem nýta sér leikskólann seinni hluta júlímánaðar og í fyrstu viku ágúst þykir nefndinni ekki ástæða til að leggja til að leikskólinn verði opinn eins og verið hefur, heldur fari að dæmi flestra sveitarfélaga í landinu og loki í fjórar vikur yfir sumartímann. Fleiri ástæður liggja að baki þeirri tillögu, eins og t.d. erfiðleikar við að manna leikskólann með fullnægjandi hætti yfir þessa mánuði og einnig er allt árlegt viðhald húsnæðis og lóðar erfiðleikum bundið þegar skólinn er opinn.
Fræðslunefnd leggur því til að leikskólinn Ársalir verði lokaður í fjórar vikur sumarið 2018. Þegar hefur verið ákveðið að hann verði lokaður í eina viku, þ.e. frá 4.-8. júní vegna námsferðar starfsfólks en auk þess verði hann lokaður þrjár vikur í júlí-ágúst.
Á næsta fundi nefndarinnar verður tekin ákvörðun um dagsetningar lokana í öllum leikskólum Skagafjarðar. Tillagan samþykkt með tveimur atkvæðum.
Sigurjón Þórðarson, fulltrúi Skagafjarðarlistans, greiðir atkvæði gegn tillögunni og óskar bókað að ekki hafi farið fram nein kynning á fyrirhugaðri lokun í fjórar vikur. Það er fyrirséð að lokunin mun kalla á óánægju foreldra og atvinnulífsins.
Bókun fundar Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Mikilvægt er að hafa foreldra með í ráðum þegar gerð er breyting á skólastarfi og leitað sé samráðs, því er lagt til að ákvörðun verði ekki tekin fyrr en viðhorf foreldra liggi fyrir ásamt umsögn foreldraráðs Ársala.
Tillagan borin upp til afgreiðslu, og felld með 7 atkvæðum gegn 2. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann hafi greitt atkvæði með tillögunni.
Afgreiðsla 124. fundar fræðslunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með sjö atkvæðum, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Bjarni Jónsson óska bókað að þau sitji hjá við afgreiðsluna. -
Fræðslunefnd - 124 Í ljósi bókunar hér á undan samþykkir fræðslunefnd að samfellt frí leikskólabarna verði þrjár vikur í stað fjögurra að þessu sinni. Engu að síður telur fræðslunefnd æskilegt að börn fái samfellt frí í að lágmarki fjórar vikur yfir sumartímann.
Bókun fundar Afgreiðsla 124. fundar fræðslunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með sjö atkvæðum, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Bjarni Jónsson óska bókað að þau sitji hjá við afgreiðsluna. -
Fræðslunefnd - 124 Lagt fram erindi frá Félagi stjórnenda í leikskólum þar sem lýst er áhyggjum af stöðu barna í leikskólum, meðal annars vegna of lítils rýmis, fjölda barna í hóp og lengd dvalartíma eins og niðurstöður skýrslu OECD „Starting strong“ sýna.
Samkvæmt skýrslu OECD eiga Íslendingar met í dvalartíma nemenda, bæði í klukkutímum á dag og fjölda daga á ári. Bókun fundar Afgreiðsla 124. fundar fræðslunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 124 Eins og kynnt var á síðasta fundi nefndarinnar renna samningar um skólaakstur út í lok maí 2018. Nefndin samþykkir að leggja til að skólaakstur verði boðinn út að nýju. Bókun fundar Afgreiðsla 124. fundar fræðslunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 124 Sviðsstjóri kynnti vinnu við fjárhagsáætlun. Bókun fundar Afgreiðsla 124. fundar fræðslunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 124 Sjá trúnaðarbók Bókun fundar Trúnaðarbók fræðslunefndar.