Umhverfis- og samgöngunefnd - 133
Málsnúmer 1711020F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 361. fundur - 29.11.2017
Fundargerð 133. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 361. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sigríður Magnúsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
- .1 1711225 Skagafjarðarhafnir - gjaldskrá 2018Umhverfis- og samgöngunefnd - 133 Lögð voru fyrir nefndina drög að gjaldskrá Skagafjarðarhafna fyrir árið 2018. Almennt hækka gjalskrárliðir um 2,6% fyrir utan gjöld tengd afgreiðslu fragtskipa sem hækka til samræmis við gjaldskrár annarra hafna.
Nefndin samþykkir drög að breyttri gjaldskrá og vísar til Byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 133. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum. - .2 1711221 Brunavarnir Skagafjarðar - gjaldskrá 2018Umhverfis- og samgöngunefnd - 133 Lagt var fyrir fundinn erindi frá Svavari A. Birgissyni, slökkviliðsstjóra, varðandi gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar fyrir árið 2018.
Í erindinu er lagt til að gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar fyrir útselda vinnu ásamt tækjaleigu muni hækka um 4 %. Gjaldskrá vegna slökkvitækjaþjónustu, þeir liðir sem innihalda efni muni hækka um 3 %. Þeir liðir gjaldskrár slökkvitækjaþjónustu sem innifela vinnu muni hækka um 4 %.
Nefndin samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar henni til Byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 133. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum. - .3 1711224 Sorpurðun og sorphirða - gjaldskrá 2018Umhverfis- og samgöngunefnd - 133 Lögð var fyrir nefndina tillaga að breyttri gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu fyrir árið 2018.
Lagt er til að gjaldskráin hækki um 5%.
Nefndin samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar til Byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 133. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum. - .4 1711223 Hunda- og kattahald - gjaldskrá 2018Umhverfis- og samgöngunefnd - 133 Lögð var fyrir nefndina tillaga að breyttri gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald fyrir árið 2018.
Lagt er til að gjaldskráin hækki um 5%.
Nefndin samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar til Byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 133. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum. - .5 1711222 Fráveitugjald og tæming rotþróa - gjaldskrá 2018Umhverfis- og samgöngunefnd - 133 Nefndin leggur til að gjaldskrá fyrir fráveitugjald og tæmingu rotþróa haldist óbreytt og vísar til Byggðarráðs til samþykktar. Bókun fundar Afgreiðsla 133. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum.
- .6 1711265 Samstarfssamningur um Heilbrigðiseftirlit Norðurlands VestraUmhverfis- og samgöngunefnd - 133 Lögð voru fyrir fundinn drög að samstarfssamning um Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Vestra. Nefndin gerir ekki athugasemdir við drögin. Bókun fundar Sigríður Magnúsdóttir gerir tillögu um að vísa málinu til afgreiðslu byggðarráðs, samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla 133. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 361. fundi sveitarstjórnar 29. nóvember 2017 með níu atkvæðum.