Fjárveitingar til íþróttafélaga og félagasamtaka
Málsnúmer 1802073
Vakta málsnúmerFélags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 251. fundur - 23.02.2018
Fjallað um starfsreglur varðandi umsóknir til Sveitarfélagsins Skagafjarðar um rekstrarstyrki til Íþrótta-, æskulýðs- og forvarnarmála. Nefndin felur starfsmönnum að aðlaga reglurnar að heildarsamningi við UMSS og leggja fyrir næsta fund.
Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 252. fundur - 19.03.2018
Lagðar fram endurskoðaðar starfsreglur varðandi umsóknir til Sveitarfélagsins Skagafjarðar um styrki til íþrótta-, æskulýðs- og forvarnarmála, sem ekki njóta styrkja í gegnum samning UMSS við Sveitarfélagið Skagafjörð. Reglurnar hafa verið einfaldaðar og gerðar skilvirkari. Nefndin samþykkir reglurnar og vísar þeim til sveitarstjórnar.
Þorvaldur Gröndal og Þorgerður Eva Þórhallsdóttir viku af fundi að loknum þessum dagskrárlið loknum.