Byggðarráð Skagafjarðar - 821
Málsnúmer 1803018F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 366. fundur - 18.04.2018
Fundargerð 821. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 366. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson, Stefán Vagn Stefánsson og Viggó Jónsson kvöddu sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Málið áður á dagskrá 649. fundar byggðarráðs.
Ljóst er miðað við þá óvissu sem ríkir um eignarhald jarðarinnar Kolkuós, er ekki hægt að taka afstöðu til sölu landsins fyrr en greitt hefur verið úr eignarhaldi þess með lögformlegum hætti. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 13. mars 2018 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018 til 2024. Frestur til að gefa umsögn um tillöguna er gefinn til 21. mars 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Lagt fram bréf dagsett 16. mars 2018 frá Íbúa- og átthagafélagi Fljótamanna sem stofnað var vorið 2017. Tilgangur félagsins skv. samþykktum er að "stuðla að eflingu samfélags, atvinnulífs og fagurs mannlífs í Fljótum í Skagafirði". Óskað er eftir að fá að hitta fulltrúa sveitarstjórnar til að ræða ýmis mál sem brenna á Fljótamönnum.
Byggðarráð samþykkir að bjóða fulltrúum félagsins á fund byggðarráðs sem stefnt er á að halda í Ketilási 5. apríl n.k. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Lagt fram bréf dagsett 18. mars 2018 frá Karlakórnum Heimi. Óskað er eftir fjárstyrk vegna afmælishátíðar í tilefni 90. ára afmælis kórsins.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Karlakórinn Heimi um 2 milljónir króna sem tekin verður af fjárhagslið 05890. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. mars 2018 frá Sögum, samtökum um barnamenningu varðandi ósk um þátttöku sveitarfélagsins í Verðlaunahátíð barnanna sem er hápunktur lestrarhvetjandi verkefnis á landsvísu sem hefur verið í gangi í vetur.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið en afþakkar þátttöku í verkefninu að þessu sinni. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að skoða kaup sveitarfélagsins á fasteigninni Aðalgötu 24. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Lagt fram til kynningar opið bréf dagsett 16. mars 2018 til byggðarráðs varðandi stöðu Byggðasafns Skagfirðinga. Bókun fundar Bjarni Jónsson kvaddi sér hljóðs og óskar bókað:
Byggðasafn Skagfirðinga hefur með starfi sínu og uppbyggingu verið eitt helsta flaggskip íslenskra safna á undanförnum árum. Þar hefur safnstjórinn unnið brautryðjendastarf með því öfluga teymi sem með henni hefur starfað í gegnum árin. Það var því ánægjuleg viðurkenning þegar safnið fékk íslensku safnaverðlaunin árið 2016 fyrir framúrskarandi starfsemi.
Það þarf því ekki að koma á óvart að það umrót og óvissa sem verið hefur um stöðu og framtíð safnsins og sýninga á þess vegum, ásamt samningum um safnastarfsemi í Glaumbæ að undanförnu, valdi áhyggjum hjá þeim sem unna Byggðasafninu og hafa lengi fylgst með farsælu starfi þess og láta sig það varða.
Það er mikilvægt að Sveitarfélagið Skagafjörður sýni hug sinn í verki eins og það hefur gert síðustu áratugi við uppbyggingu Byggðasafns Skagfirðinga sem hefur átt sinn þátt í að skapa því þann sess sem það hefur öðlast á landsvísu og langt út fyrir landssteinanna.
Bjarni Jónsson, VG og óháðum
Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Lögð fram til kynningar ályktun Félags íslenskra safnafræðinga um stöðu Byggðasafns Skagfirðinga frá 19. mars 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 821 Lagt fram til kynningar svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bjarna Jónssyni um dómþing. 148. löggjafarþing 2017-2018, þingskjal 527 - 166. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 821. fundar byggðarráðs staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum.