Lagt fram bréf, dagsett 17. október 2018, frá Safnaráði varðandi eftirlitsferðar vegna nýs varðveislurýmis Byggðasafns Skagfirðinga. Berglind Þorsteinsdóttir safnstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd harmar það að til standi að starfrækja bifreiðaþjónustu við hliðina á bráðabirgða varðveislurými Byggðasafns Skagfirðinga sem setur varðveislumál í uppnám. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd hyggst skoða málið til hlítar og leita lausna.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd harmar það að til standi að starfrækja bifreiðaþjónustu við hliðina á bráðabirgða varðveislurými Byggðasafns Skagfirðinga sem setur varðveislumál í uppnám.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd hyggst skoða málið til hlítar og leita lausna.