Byggðarráð Skagafjarðar - 844
Málsnúmer 1811003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 376. fundur - 12.12.2018
Fundargerð 844. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 376. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 30. október 2018. Verið Vísindagarðar ehf. boðar til aðalfundar þann 20. nóvember 2018.
Byggðarráð samþykkir að Gunnsteinn Björnsson fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 844. fundar byggðarráðs staðfest á 376. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lagður fram tölvupóstur frá Samgöngustofu, dagsettur 6. nóvember 2018, varðandi minningardag þeirra sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Minningardagurinn verður sunnudaginn 18. nóvember 2018 og sveitarfélög hvött til þess að taka þátt í deginum með einum eða öðrum hætti.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og hvetur íbúa og viðbragðsaðila til að taka þátt í deginum. Bókun fundar Afgreiðsla 844. fundar byggðarráðs staðfest á 376. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lögð fram bókun 60. fundar atvinnu-, menningar og kynningarnefndar þann 24. október 2018, varðandi gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2019. Lagt er til að gjaldskráin verði óbreytt frá árinu 2018. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er 1.700 kr. og 1.500 kr. fyrir hópa, öryrkja, eldri borgara og námsmenn.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 16 "Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2019" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lagt fram bréf frá Þjóðskrá Íslands, landupplýsingadeild, ódagsett en móttekið 6. nóvember 2018, varðandi landfræðileg upplýsingagögn sveitarfélaga. Óskað er eftir samstarfi við sveitarfélög við að koma upp starfrænum gagnagrunni með hnitsettum eignamörkum í landeignaskrá.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur byggingarfulltrúa að sjá um samkipti við Þjóðskrá Íslands. Bókun fundar Afgreiðsla 844. fundar byggðarráðs staðfest á 376. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lagt fram bréf dagsett 1. nóvember 2018 frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, varðandi nýja reglugerð um sjóðinn sem er nú í samráðsgátt til umsagnar.
Byggðarráð fagnar framkomnum drögum þar sem á margan hátt er verið að koma til móts við sjónarmið landstórra fjölkjarna sveitarfélaga. Mikilvægt er að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga haldi upprunalegu hlutverki sínu að jafna aðstöðumun sveitarfélaga á landinu vegna verkefna sinna. Bókun fundar Afgreiðsla 844. fundar byggðarráðs staðfest á 376. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis, dagsettur 25. október 2018, þar allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna afnáms um uppreist æru, 222. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 844. fundar byggðarráðs staðfest á 376. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2018 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis, dagsettur 8. nóvember 2018, þar umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um náttúrustofur, 29. mál.
Byggðarráð fagnar framkominni þingsályktunartillögu enda mikilvægt að efla starfsemi náttúrustofa með auknum verkefnum og fjármagni. Bókun fundar Afgreiðsla 844. fundar byggðarráðs staðfest á 376. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 844 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis, dagsettur 8. nóvember 2018, þar sem velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í húsnæðismálum, 5. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 844. fundar byggðarráðs staðfest á 376. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2018 með níu atkvæðum.