Lögð fram drög að bréfi til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra þar sem honum er sent til upplýsingar áform Menningarseturs Skagfirðinga í Varmahlíð um að leggja setrið niður. Stjórnin gerir ráð fyrir að formleg beiðni verði síðar sett fram til sýslumanns með fylgigögnum á grundvelli 6. gr. laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 19/1988, með síðari breytingum. Stjórn Menningarseturs samþykkir að senda bréfið til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra.
Stjórn Menningarseturs samþykkir að senda bréfið til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra.