Fara í efni

Umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis þorrablót Höfðaborg

Málsnúmer 1901106

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 853. fundur - 16.01.2019

Lagður fram tölvupóstur úr máli 1901087, dagsettur 9. janúar 2019 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Óskað er eftir umsögn um umsókn Sigmundar Jóhannessonar f.h. Félagsheimilisins Höfðaborgar um tækifærisleyfi skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 vegna þorrablóts í félagsheimilinu þann 9. febrúar 2019.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.