Umhverfis- og samgöngunefnd - 150
Málsnúmer 1902006F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 381. fundur - 13.03.2019
Fundargerð 150. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 381. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Ingibjörg Huld Þórðardóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 150 Sameiginlegur fundur skipulags- og bygginganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar.
Undirbúningsvinna fyrir gerð endurskoðaðs deiliskipulags fyrir hafnarsvæðið á Sauðárkróki er hafin.
Farið var yfir ýmis fyrirliggjandi gögn vegna skipulagsgerðarinnar, m.a. drög að verklýsingu, drög að skipulagslýsingu frá 2016 og frumhugmyndir siglingasviðs Vegagerðarinnar að stækkun Sauðárkrókshafnar frá árinu 2014.
Í drögum að verklýsingu er stutt lýsing á viðfangsefnum endurskoðunar á skipulagi, nálgun skipulagsvinnunnar ásamt tímaáætlun.
Verkfræðistofan Stoð ehf á Sauðárkróki verður ráðgjafi Sveitarfélagsins við gerð deiliskipulagsins og sátu fulltrúar Verkfræðistofunnar fundinn.
Fyrirhugað er að halda fund með hagsmunaaðilum þar sem þeim verður gefinn kostur á að koma á framfæri sínum viðhorfum.
Bókun fundar Afgreiðsla 150. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 150 Tekið var fyrir erindi frá Kiwanisklúbbnum Freyju varðandi samstarf við Sveitarfélagið um uppbyggingu fjölskyldugarðs á Sauðárkróki.
Umhverfis- og samgöngunefnd tekur jákvætt í erindið og fagnar frumkvæði Kiwanisklúbbsins Freyju. Fulltrúum frá klúbbnum er boðið að koma á næsta fund nefndarinnar til að kynna málið frekar. Bókun fundar Afgreiðsla 150. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.