Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 341

Málsnúmer 1902013F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 381. fundur - 13.03.2019

Fundargerð 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 381. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir, með leyfi varaforseta, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 341 Helgi Jóhann Sigurðsson kt. 140257-5169, þinglýstur eigandi jarðarinnar Reynistaður í Skagafirði, landnúmer 145992 sæki um leyfi til að stofna byggingarreit fyrir vélageymslu á landi jarðarinnar. Framlagðir uppdrættir gerðir á teiknistofunni Samræmi ehf. af Arnari Skjaldarsyni kt. 031167-5829, dagsettir 9. janúar 2019, gera grein fyrir erindinu. Samþykkt með fyrirvara um samþykki minjavarðar. Bókun fundar Afgreiðsla 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 341 Geirmundur Valtýsson kt. 130444-4829, þinglýstur eigandi Geirmundarstaða í Sæmundarhlíð,landnr. 145972, óskar heimildar skipulags- og byggingarnefndar til að skipta lóð úr landi jarðarinnar skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti, gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Númer uppdráttar er S-101 í verki 7611-01, dags.7. febrúar 2019. Óskað er eftir því að lóðin fái heitið Geirmundarstaðir 1. Ennfremur er óskað eftir því að lóðin verði leyst úr landbúnaðarnotum. Í umsókn kemur fram að lögbýlaréttur og öll hlunnindi munu áfram tilheyra Geirmundarstöðum (landnr. 145972) eftir ofangreindar breytingar. Erindið samþykkt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 341 Margrét Guðmundsdóttir og Kári Sveinsson hjá Bókhaldsþjónustunni KOM ehf sem er eigandi lögbýlisins Hafrgils II, landnúmer 200339, óska heimildar til nytjaskógræktar á 35,5 hektara svæði í landi jarðarinnar. Meðfylgjandi er hnitsettur uppdráttur af fyrirhuguðu skógræktarsvæði. Niðurstaða skipulags- og byggingarfulltrúa er að umbeðin framkvæmd sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
    Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að umbeðið framkvæmdaleyfi verði veitt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 341 Tillagan að verndarsvæði í byggð, norðurhluti gamla bæjarhlutans á Sauðárkróki, ásamt greinargerð var auglýst í samræmi við 5. grein laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Auglýsingartími var frá 24. október 2018 til og með 7. desember 2018.
    Norðurhluti gamla bæjarins á Sauðárkróki er það svæði sem lagt er til að gert verði að verndarsvæði í byggð. Gamli bærinn á Sauðárkróki er elsti hluti byggðarinnar og sá hluti sem hér er tekinn fyrir, norðurhlutinn er jafnframt ysti hluti íbúðabyggðar á Sauðárkróki.
    Markmið þess að gera gamla bæinn á Sauðárkróki að sérstöku verndarsvæði er að viðhalda og styrkja byggð á svæðinu á þann hátt að verndun, uppbygging og framþróun haldist í hendur. Skipulags og byggingarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að verndarsvæði í byggð verði samþykkt og send mennta- og menningarmálaráðherra í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015.

    Bókun fundar Afgreiðsla 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 341 Fyrir liggur lóðayfirlit yfir sjö lóðir við Melatún á Sauðárkróki, grunnmyndir og sneiðingar. Samþykkt að auglýsa lóðirnar lausar til umsóknar að fenginni staðfestingu sveitarstjórnar 13. mars nk. Umsóknir verða afgreiddar miðvikudaginn 27. mars. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð. Bókun fundar Afgreiðsla 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 341 Farið yfir stöðu málsins, rætt um framvindu og verklag. Samþykkt að boða til fundar með hagsmunaaðilum. Sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að undirbúa fundinn. Bókun fundar Afgreiðsla 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 341 Fundargerð 82. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 341. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.