Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd - 265

Málsnúmer 1904016F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 384. fundur - 29.05.2019

Fundargerð 265. fundar félags- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu á 384. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félags- og tómstundanefnd - 265 Erindi barst frá foreldrafélgi Ársala þar sem óskað er eftir því að nemendur yngri en 6 ára njóti einnig hvatapeninga. Lagt er fram minnisblað frístundastjóra um íþrótta- og tómstundaiðkun barna yngri en 6 ára. Nefndin frestar málinu og mun gefa sér tíma til að skoða málið frekar. Nefndin ítrekar vilja sinn til að öll börn hafi aðgang að uppbyggilegu frístundastarfi án mikils tilkostnaðar foreldra.


    Bókun fundar Afgreiðsla 266. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 265 Lagt fram minnisblað frá frístundastjóra um laun í vinnuskóla sumarið 2019. Laun nemenda verða sem hér segir:
    Árgangur 2006 getur unnið sér inn kr. 21.480 fyrir 40 klukkustunda vinnuframlag
    Árgangur 2005 getur unnið sér inn kr. 71.280 fyrir 120 klukkustunda vinnuframlag
    Árgangur 2004 getur unnið sér inn kr. 122.940 fyrir 180 klukkustunda vinnuframlag
    Árgangur 2003 getur unnið sér inn kr. 199.200 fyrir 240 klukkustunda vinnuframlag
    Nefndin samþykkir laun vinnuskóla sumarið 2019.

    Bókun fundar Afgreiðsla 266. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 265 Lagt fram minnisblað frístundastjóra um stöðu framkvæmda við Sundlaugina á Sauðárkróki. Verið er að leggja lokahönd á breytingar í þessum áfanga og vonast er til að hún verði opnuð að nýju hið fyrsta. Bókun fundar Afgreiðsla 266. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 265 Félagsmálastjóri kynnti drög að Reglum Sveitarfélagsins Skagafjarðar varðandi aðkomu félagsþjónustunnar að samstarfi við lögreglu um viðbrögð við heimilisofbeldi. Samhliða var lagður fram gátlisti fyrir vettvangsstarfsmenn í heimilisofbeldismálum. Reglurnar voru kynntar og samþykktar á fundi Barnaverndarnefndar Skagafjarðar 23.apríl sl. Nefndin samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 266. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Félags- og tómstundanefnd - 265 Tekin fyrir tvö mál. Niðurstaða færð í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 266. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.