Fara í efni

Landbúnaðarnefnd - 204

Málsnúmer 1904020F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 384. fundur - 29.05.2019

Fundargerð 204. fundar landbúnaðarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 384. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Sefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðarnefnd - 204 Lagt fram til kynningar erindi frá Gunnari Valgarðssyni vegna endurgerðar og viðhalds Bugaskála á Eyvindarstaðaheiði. Fjármagn til viðhaldsins var tryggt með viðauka á fjárhagsáætlun 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 204. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 204 Lagt fram til kynningar fundarboð frá forsætisráðuneytinu dagsett 2. apríl 2019 varðandi málefni þjóðlendna. Sveitarstjórnarmönnum og forsvarsmönnum fjallskilanefnda er boðið á fundinn sem verður haldinn á Sauðárkróki þann 7. júní 2019 í Húsi frítímans. Bókun fundar Afgreiðsla 204. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 204 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Skarðshrepps fyrir árið 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 204. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 204 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Sauðárkróks fyrir árið 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 204. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 204 Lögð fram drög að áætlun um minka- og refaveiði ársins 2019. Undir þessum dagskrárlið komu refa- og minkaveiðimenn til viðræðu um tilhögun veiðanna árið 2019. Mættir voru: Birgir Hauksson, Steinþór Tryggvason, Kári Gunnarsson, Kristján B. Jónsson, Þorsteinn Ólafsson, Marinó Indriðason, Elvar Jóhannsson, Garðar Jónsson, Hans Birgir Friðriksson og Jón Númason.
    Landbúnaðarnefnd samþykkir áætlunina með áorðnum breytingum. Einnig samþykkir nefndin að greiða vegna refaveiða ráðinna veiðimanna 20.000 kr. fyrir grendýr, 7.000 kr. fyrir hlaupadýr og vetrarveiði. Verðlaun til annarra fyrir unninn ref 7.000 kr. Greitt verður vegna minkaveiða ráðinna veiðimanna 7.200 kr. fyrir unnið dýr. Verðlaun til annarra verða 1.800 kr. á dýr.
    Landbúnaðarnefnd hefur áhyggjur af uppgangi minks innan sveitarfélagsins og hvetur menn til að halda vöku sinni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 204. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.