Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 65

Málsnúmer 1904028F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 384. fundur - 29.05.2019

Fundargerð 65. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 384. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 65 Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tók fyrir tilnefningar til Samfélagsverðlauna 2019. Alls bárust 11 tilnefningar.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að veita Geirmundi Valtýssyni Samfélagsverðlaunin 2019. Geirmundur hefur verið ein af stoðum skagfirsks menningarlífs um langan tíma og spannar ferill hans í tónlist yfir 60 ár. Geirmundur hefur stuðlað að jákvæðri ímynd Skagafjarðar og unnið óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 65. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 65 Tekin fyrir styrkbeiðni frá Leikfélagi Hólmavíkur dagsett þann 9. apríl þar sem beðið er um stuðning við leiksýningu í Árgarði 27. apríl.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að veita 35.000 kr styrk til sýningarinnar. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar þessu framtaki og hvetur fólk til að fjölmenna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 65. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 65 Lögð fram til kynningar áfangaskýrsla Flugklasans Air 66N.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar aukningu á flugi til Akureyrar og vonar að sá vöxtur haldi áfram og eflist í framtíðinni. Jafnframt hvetur nefndin ISAVIA til að ráðast í nauðsynlegar úrbætur á Akureyrarflugvelli hið fyrsta.
    Bókun fundar Afgreiðsla 65. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.