Fara í efni

Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um tillögu til þingsályktunar um ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 932017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) 777. mál.

Málsnúmer 1904119

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 864. fundur - 17.04.2019

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. apríl 2019 frá nefndasviði Alþingis. Utanríkismálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (þriðji orkupakkinn), 777. mál.
Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 383. fundur - 24.04.2019

Forseti sveitarstjórnar Regína Valdimarsdóttir, með leyfi varaforseta, leggur fram neðangreinda ályktun.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar áréttar að orkuauðlindin er ein af mikilvægustu forsendum velmegunar í landinu. Mikilvægi þess að allar ákvarðanir í orkumálum verði í höndum Íslendinga er því ótvírætt. Skal í því sambandi minnt á að stjórnarskrá Íslands leyfir ekki framsal ríkisvalds til erlendra stofnana. Aðstæður Íslands í orkumálum eru gjörólíkar þeim sem liggja til grundvallar orkulöggjöf ESB og því er óskynsamlegt að innleiða það regluverk hér. Ísland hefur í dag enga tengingu við orkumarkað ESB og telur sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar slíka tengingu ekki þjóna hagsmunum landsmanna. Sveitarstjórn telur því rétt að Alþingi og ríkisstjórn skuli leita eftir undanþágu frá innleiðingu þriðja orkupakkans.

Borið upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.