Rekstrarupplýsingar 2019
Málsnúmer 1904245
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 867. fundur - 22.05.2019
Lagðar fram til kynningar óendurskoðaðar upplýsingar um rekstur sveitarfélagsins tímabilið janúar-mars 2019. Skatttekjur tímabilsins eru samkvæmt áætlun og heildartekjur sömuleiðis. Rekstrargjöld eru í heildina undir fjárhagsáætlun tímabilsins. Rekstrarhalli er á samstæðunni í lok framangreinds tímabils en þó undir áætlaðri afkomu.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 876. fundur - 21.08.2019
Lagðar fram til kynningar upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins fyrir tímabilið janúar - júní 2019. Í þessu óendurskoðaða yfirliti kemur fram að rekstur sveitarfélagsins, í heild sinni, er í góðu jafnvægi og í takt við fjárhagsáætlun ársins.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 882. fundur - 01.10.2019
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um rekstur sveitarfélagsins og stofnana þess fyrir tímabilið janúar-júlí 2019.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 886. fundur - 31.10.2019
Lagðar fram óendurskoðaðar upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins og stofnana fyrir tímabilið janúar-ágúst 2019. Niðurstaða rekstrar í A og B hluta er innan marka fjárhagsáætlunar og gefur fyrirheit um að niðurstaða ársins verði betri en áætlað var.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 891. fundur - 04.12.2019
Lagðar fram til kynningar upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins og stofnana fyrir tímabilið janúar - september 2019.