Fara í efni

Fræðslunefnd - 142

Málsnúmer 1905006F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 384. fundur - 29.05.2019

Fundargerð 142. fundar fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu á 384. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Laufey Kristín Skúladóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Fræðslunefnd - 142 Borist hefur erindi frá föður barns í dreifbýli þar sem óskað er eftir að 5 ára sonur hans fái að fara með skólarútu í leikskólann Birkilund í Varmahlíð. Faðir barnsins býr í rúmlega 40 km fjarlægð frá leikskólanum og keyrir eldri börn sín í veg fyrir skólarútuna. Barnið mun fara í Varmahlíðarskóla frá og með hausti 2020.
    Samkvæmt reglum Sveitarfélagsins Skagafjarðar um akstur skólabarna í dreifbýli er ekki heimilt að aka með aðra farþega en grunnskólanemendur, svo sem börn í leikskóla, nema með sérstöku samþykki fræðslunefndar.
    Fræðslunefnd samþykkir að afla frekari gagna og frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 142 Farið var yfir stöðu mála hvað varðar undirbúning ákvörðunar fræðslunefndar um fyrirkomulag hádegisverðar í Ársölum. Taka þarf ákvörðun fyrir mánaðarmót um hvort verkið verður boðið út að nýju til eins árs eða samningar við núverandi verktaka framlengdir. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi fræðslunefndar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 142 Farið var yfir stöðu mála hvað varðar undirbúning ákvörðunar fræðslunefndar um framtíðarfyrirkomulag hádegisverðar í Árskóla. Verktaki hefur samþykkt framlengingu á núgildandi samningi um eitt ár. Fræðslunefnd samþykkir einnig fyrir sitt leyti að framlengja samning um eitt ár.
    Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 142 Drög að útboðslýsingu og korti af innanbæjarakstri liggja fyrir og er búist við að hægt verði að bjóða verkið út fyrir mánaðarmót, skv. bókun síðasta fundar fræðslunefndar. Fræðslunefnd samþykkir að veita starfsmönnum fjölskyldusviðs heimild til að bjóða út skólaakstur á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir núna.

    Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 142 Unnið er að úthlutun kennslukvóta til grunnskólanna fyrir skólaárið 2019-2020 og er þess vænst að hægt verði að ganga frá honum á næsta fundi fræðslunefndar. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 142 Fyrir liggur tölvuskeyti frá oddvita Akrahrepps með staðfestingu á því að hreppurinn mun taka þátt í að koma á fót og reka heilsdagsvistun við Varmahlíðarskóla á grundvelli þeirra minnisblaða og kostnaðaráætlana sem kynnt hafa verið. Fræðslunefnd fagnar niðurstöðu málsins og felur sviðsstjóra að koma málinu í framkvæmd. Fræðslunefnd vísar málinu áfram til byggðarráðs.

    Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 142 Helga Harðardóttir, kennsluráðgjafi, kom á fundinn og kynnti vinnu við gerð Menntastefnu Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Fræðslunefnd þakkar Helgu og teyminu öllu fyrir góða vinnu. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 142 Lögð fram til kynningar greinargerðir menntamálaráðuneytisins er varða útfærslu starfsnáms og námsstyrkja til kennaranáms. Aðgerðirnar eru liður stjórnvalda í að fjölga nemendum í kennaranámi. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar fræðslunefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.