Byggðarráð Skagafjarðar - 889
Málsnúmer 1911014F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 391. fundur - 12.12.2019
Fundargerð 889. fundar byggðarráðs frá 20. nóvember 2019 lögð fram til afgreiðslu á 391. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagt fram minnisblað dagsett 23. október 2019 frá RR ráðgjöf vegna úttektar á fjölskyldusviði sveitarfélagsins. Óskað var eftir úttektinni af hálfu byggðarráðs þann 10. desember 2018. Einnig lagt fram minnisblað sveitarstjóra vegna úttektarinnar.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að meta tillögur sem fram koma í skýrslunni og vinna úr þeim. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lögð fram drög að viðauka númer 7 við fjárhagsáætlun 2019. Viðaukinn hefur hvorki áhrif á rekstur sveitarfélagsins né efnahag. Um er að ræða millifærslu á 25 mkr. framkvæmdafé frá eignasjóði til hitaveitu.
Byggðarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 33 "Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2019". Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Málið áður á dagskrá 888. fundi byggðarráðs. Lögð fram svohljóðandi bókun 64. fundar veitunefndar frá 5. nóvember 2019: "Lögð var fram til kynningar hönnun og kostnaðaráætlun vegna lagningar hitaveitu um norðanvert Hegranes unnin af Braga Þór Haraldssyni á Verkfræðistofunni Stoð ehf. Veitunefnd leggur til og vísar til byggðarráðs að lagning hitaveitu um norðanvert Hegranes verði á fjárhagsáætlun næsta árs."
Byggðarráð samþykkir að efniskaup vegna framkvæmdarinnar verði gerð á árinu 2019 og stefnir að því að annar kostnaður verði á fjárfestingaráætlun ársins 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 13. nóvember 2019 frá Sótahnjúk ehf. varðandi hugmyndir félagsins um uppbyggingu að Sólgörðum í Fljótum. Óskað er eftir viðræðum um mögulega nýtingu húsnæðis undir merkjum félagsins.
Byggðarráð tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að finna fundartíma sem hentar báðum aðilum. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 13. nóvember 2019 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sent sveitarfélögum landsins varðandi vatnsveitur og ákvörðun á fjárhæð vatnsgjalds í gjaldskrá. Óskað er eftir upplýsingum um þau atriði og gögn sem gjaldskrár vatnsveitna er varða vatnsgjald eru byggðar á. Einnig lagt fram minnisblað ráðuneytisins um gjaldskrá vatnsveitna og fjármagnskostnað, dagsett 25. október 2019. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. nóvember 2019 frá nefndasviði Alþingis. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 319. mál.
Byggðarráð tekur undir markmið frumvarpsins. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. nóvember 2019 frá nefndasviði Alþingis. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (leyfisveitingar, málsmeðferð, endurupptaka o.fl.), 317. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. nóvember 2019 frá nefndasviði Alþingis. Velferðarnefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu), 320. mál.
Byggðarráð fagnar markmiðum frumvarpsins. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. nóvember 2019 þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 283/2019, "Frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir". Umsagnarfrestur er til og með 28.11.2019. Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 889 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 14. nóvember 2019 frá Umhverfisstofnun. Á ársfundi Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa sem haldinn var þann 14. nóvember 2019 á Egilsstöðum, kynnti Umhverfisstofnun nýútgefinn upplýsingabækling sem ætlaður er sem handbók fyrir sveitarfélög. Fjallað er um leyfisveitingar, sérstaka vernd, umsagnir, friðlýsingar, akstur utan vega, vegaskrá og almennt um hlutverk sveitarfélaga og náttúruverndarnefnda skv. náttúruverndarlögum nr. 60/2013. Bæklinginn er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Bókun fundar Afgreiðsla 889. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.