Gjaldskrár vatnsveitna sveitarfélaga
Málsnúmer 1911101
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 889. fundur - 20.11.2019
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 13. nóvember 2019 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sent sveitarfélögum landsins varðandi vatnsveitur og ákvörðun á fjárhæð vatnsgjalds í gjaldskrá. Óskað er eftir upplýsingum um þau atriði og gögn sem gjaldskrár vatnsveitna er varða vatnsgjald eru byggðar á. Einnig lagt fram minnisblað ráðuneytisins um gjaldskrá vatnsveitna og fjármagnskostnað, dagsett 25. október 2019.
Veitunefnd Svf Skagafjarðar - 65. fundur - 22.01.2020
Farið var yfir efni kynningarfundar á vegum Samorku og Sambands íslenskra sveitarfélaga um ákvörðun gjaldskrár vatnsveitna sveitarfélaga.
Veitunefnd Svf Skagafjarðar - 66. fundur - 05.03.2020
Lagt var fram til kynningar svarbréf frá Skagafjarðarveitum vegna fyrirspurnar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi gjaldskrár vatnsveitna.