Fara í efni

Rekstur félagsheimilisins Árgarðs 2019

Málsnúmer 1911195

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 71. fundur - 28.11.2019

Tekin fyrir beiðni frá Mörtu Maríu Friðþjófsdóttur dagsett 30.10.2019 þar sem hún óskar eftir því að auglýst verði eftir nýjum rekstraraðila fyrir félagsheimilið Árgarð.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að rekstur félagsheimilisins verði auglýstur til leigu til lengri tíma. Starfsmönnum nefndarinnar falið að auglýsa eftir rekstraraðila fyrir félagsheimilið og óskar jafnframt eftir upplýsingum um hvernig viðkomandi hyggist standa að rekstri og framtíðaráformum.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 73. fundur - 23.01.2020

Tekið fyrir málefni félagsheimilisins Árgarðs og tjaldstæðisins á Steinsstöðum.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd ákveður að bjóða út saman rekstur félagsheimilisins Árgarðs og tjaldstæðins á Steinsstöðum. Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að auglýsa eftir rekstraraðila.